Mongoz Are Taking Over
13.11.2006 18:46:53 / mongoz

merkilegt

úff...það tók sko 4 skipti að reyna að muna passwordið inná þessa síðu...en ég ákvað bara aðeins að blogga af því fólk virðist semi ennþá vera að skoða þetta...það er dáldið merkilegt

en ég er búin að vera vægast sagt mikil brussa í dag síðan ég kom heim. ég semsagt byrjaði á að henda niður kókglasi sem brotnaði eins og því væri borgað fyrir fjölda glerbrota. ég þurfti náttúrulega að taka fram minn VERSTA óvin, ryksuguna...þegar ég var í því að standa í að leyta að öllum litlu glerbrotunum flækti ég ryksuguna í kertastjaka sem datt í gólfið og fór í tvennt..en ég gat lagað það:) svo ákvað ég aðeins að ryksuga yfir lyklaborðið...og neeeei....ryksugaði ég ekki ljóta "tab" takkann AF:S hvað gera bændur þá...jú eftir að vera búin að telja uppá þúsund í mig kjark ákvað ég nú að taka pokann úr og byrja að gramsa....og þvílíkur VIÐBJÓÐUR!!! eftir að hafa kúgast nokkrum sinnum yfir þessum líka mikla fjölda HÁRA og RYKHLUSSUM og ýmsu fleiru fannst enginn takki...með svekkelsi í hjarta ákvað ég að hrista barkann aðeins og viti menn...ÚT KOM TAKKINN...grams í þessum ljóta poka til einskis!!!!

en núna er ég búin að þvo hendurnar á mér nógu oft hugsa ég og ég held að pítan bjargi alveg þessu áfalli á eftir....:D

en það er að snjóa úti:) mikið hrikalega er ég glöð..ef þessi snjór ætlar þá eikkað að haldast!

ég hef 0 meira að segja þannig ég segi bara bless!!! spurning hvort eikker sjái þetta blogg;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 18:00:10 / mongoz

PÆLING

hey ég var að skoða aðeins á netinu um ferð til DK og þar sem helmingurinn af okkur er í úglöndum ætla ég að skrifa þetta hér ef vill so heppilega til að þið komist á veraldarvefinn;)

ok..flug báðar leiðir kostar 17.600+flugvallaskattur 8.620+hótelherbergi, mest 3000 nóttin á mann í 4 nætur sem er 12000 og samkvæmt mínum útreikningum er það 38.220 íslenskar krónur!!! allur pakkinn...sem mér finnst sko nokkuð gott!!

hvað segiði so...eigum við að skella okkur í haustfríinu...20-24 október:P tékkað aðeins á næturlífinu í dk og haft það gott:) let mí nó beibííís....annars er það bara feit sumó ferð!!!

pjÁsa


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.08.2006 14:48:11 / mongoz

þuuuunglyndi

hhaaaaalló....ákkúrat núna eftir smá stund leggur helga í hann á suðurnesin til að fara í búlgarska flugvél á vit útlandanna...!!! GÓÐUSTU FERÐ KRÚTTÍBOMBA!!! og koddu með smá sól með þér til baka...ég er brjálað öfundsjúk...!!!

ennn svo fer ég líka til danmerkur á fimmtudaginn..víííí versla versla versla í hitabygljunni...þarað segja ef ég get labbað þá

það má alveg fara að endurnýja þessa lækna á þessum spítala þanna...þeir eru allir svo ríkir að þeir geta eytt óþarfapening í að græða í sig hár sem fallið hafa af hausum þeirra og litað þau fögursvört svo ekki sjáist grái blærinn...en þeir blekkja ekki hana Ásu sína...oooonei...ég sá gráu hárin læðast þarna undir...KOMNIR MEÐ RÓT...uss hafa ekki nógu mikil kvengen í sér!

en annað mál...ég fékk eikkerja helvítis sýkingu í löppina og ákvað hnéð að láta dáldið mikið á sér bera og vera sona 7falt....síðan bara varð löppin eins og landakort með fullt af rauðum blettum útum alla löpp...plehh...nei ákvað ekki einn gamlinginn að það þyrfti að setja mig í gifs....HA? og ekkert lítið gifs ...alveg frá ökkla og lengst uppá læri...EKKI SÁTT...en so kom ég aftur morguninn eftir og kom ekki annar öldungur og sagði að ég þyrfti ekkert gifs hennti mér í tegjusokk og sagði bless...mikið var ég glöð og alveg að pæla að gefa honum medalíu...en ég er allavega orðin snillingur á hækjum en samt búin að segja þeim upp:) þar sem ég er snillingur....ég er bara þunglynd núna og með fótboltaþráááááááááá.....þannig allir sem vilja mega koma í heimsókn eða koma með mér að HORFA á Breiðablik-Valur á eftir....HELVÍTIS....

hey svo styttist bara óðum í skólann og 3 bekkinn og stuðið....usss ekki frá því að lítill tilhlökkunardvergur hoppi um í hjarta mínu....

en verslunarmannahelgin framundan og þar sem ég verð handan færeyja þá get ég ekki fylgst með að allt fari friðsamlega fram þannig ég vil bara biðja ykkur að fara varlega oní áfengið...!

ég vil líka minna fólk á að byrja að safna fyrir trampolíninu mínu sem þið ætlið að gefa mér í afmælisgjöf TAKK:P

GÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓÐA FEEEEEEEEEEERÐ HELGZ PELGZ!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

pjÁsa


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 23:11:23 / mongoz

Laugaland

úff..þetta var rosaleg ferð!!!

og þið jólasveinar Eló og Arndís hefðuð ekki átt að missa af þessu..sorry

ennn herlegheitin byrjuðu þegar við vorum komnar uppá heiði og hún yndislega móðir mín hringdi í mig og tilkynnti mér það að ég hafi gleymt svefnpokanum mínum...obbasí...þannig hún bauðst til að koma með hann í hveragerði...hversu góð ha...en þá gafst okkur einmitt tími til að kynnast smá lífinu í hveragerði sem er 0 spennandi...við sáum gaur á hjóli sem hjólaði fram og til bara upp og niður brekku...sáum fólk sem var alveg sama um bílana sína og vissi ekki hvað búð er...sáum konu í partýi með sjeffer hundinum sínum...sáum gaur í þröngum bleikum bol, gaur í magabol og ALLTOF fullann róna sem virtist vera með staurfót...þannig hveragerði á föstudagskvöldi verður ekki áfangastaður minn aftur í bráð...

ferðin hélt svo áfram þegar svefnpokinn og 2 koddar voru komnir sem áttu svo eftir að bjarga okkur seinna!

þegar á Laugaland var komið var heilsað uppá þá 7 sem voru fyrir...það voru Guðrún Sif og Lydia og eikkað fólk og svo var haldið að kíkja á svæðið...og viti menn...við fundum e-ð við okkar hæfi...rólur rennibraut og allskonar....og regngallarnir okkar voru að gera það MJÖG gott....við héldum svo í partýtjaldið og þegar við sögðumst ætla að spara búzið okkar þangað til kvöldið eftir leyst innbúum ekkert á það og splæstu allskonar á okkur...enda áttu þau yfirdrifið nóg....við vorum ekkert að mótmæla því og fórum í ´drykkjuleik sem breyttist fljótlega í sjúga blása...eftir það var haldið út og fólkið komið dáldið íða...ég og Helga tókum uppá því að klifra uppí tré...og helga fór ALLA leið...en ég beilaði og fór bara hálfa leið...og fann svo góðan stað til að hvíla mig á í trénu...

þetta var hins vegar bara stutt í þetta skiptið og við ákváðum að krassa í bílnum og settum aftursætin upp og komum okkur fyrir í skottinu...eins og landsmenn ættu að vita er skottið á getz ekki það stærsta á markaðnum og þó að sætinu höfðu farið upp var þetta frekar þröngt...en okkur leyst samt heldur betur á þetta og settum teppi á gólfið...eftir smá vangaveltur yfir hvor hliðin var lengri komum við okkur fyrir og héldum á vit draumanna....þetta var erfið nótt! ;)

við vöknuðum endanlega klukkan hálf eitt, létum sætin niður og hentum draslinu afturí og héldum á vegamót til að kaupa í matinn þar sem við tókum ekkert með okkur!:) svo skelltum við okkur í smá sund...en hún varð ekki merkilegri en sona klukkutíma seta í heitapotti:) svo var bara borðað og rúntað aðeins og beðið eftir fólkinu að mæta á svæðið...loks byrjaði fólkið að týnast á svæðið og stemmning færðist yfir hópinn...við ákváðum að tjalda og þegar búið var að tjalda og gera grín af tjaldinu hennar bryndísar var sest inn til ingvars og co og "farið með gamanmál" ;)

stuttu seinna byrjaði mjólkurtíminn hjá fólki og við fórum inní tjald með gítar og skemmtum okkur vel þar...eftir það var haldið útá sparkvöll...allir með áfengi við hönd...og spilaður fótbolti eins og við fengjum borgað fyrir það...sér reglur eins og bjórsull og víti voru við völd og eintóm gleeeeði...:) ótrúlega gaman í sona fótbolta...enda ekki það léttasta...eftir það var svo sungið aðeins meir eikkerstaðar og bara djammað fram á rautt kvöld, rauða nótt og rauðann morgun:) við helga sváfum vel í tjaldinu...eða helga oooog..... svo krassaði ég víst tjaldið...sorry...;) ætlaði bara ekki að sofa í bíl aftur...;) en nú var sofið vel....en samt aðeins erfiðari morgun:S við viljum samt ekkert tala um það og stuttu seinna héldum við af stað í bæjinn...!!!

þessi ferð var bara EINTÓM snilld og mun seint (en samt svo fljótt:S ) gleymast;) þykir roooosa leiðilegt að þið jólasveinarninr sáuð ykkur ekki fært að komast...! en hey..bara næst

takk fyrir mig

og já...myndir á www.myndir.ekkert.is/asadogg


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 21:49:28 / mongoz

alvuru gleði:D

mér fannst að það þyrfti aðeins meiri upplyftingu hér þar sem sorgafréttirnar og vonleysið hennar helgu eru búnar að vera efstar á blaði í dáldinn tíma...

allavega helgin:
á föstudaginn skelltum við helgz okkur í grafarvoginn í smá gleðskap;) þar var mikið um krapadjús í munni og maga og inná buxum:S en helgan sem var hoppandi um á annari vakti mikla lukku og vangaveltna...hörkupartý þar á ferð...þrátt fyrir ýmsa skrautlega atburði og skemmtilegheit...! :)

laugadagurinn byrjaði svo á góðum vesturbæjarís...og svo hélt ég beint uppí sveit á smá hestbak og rúnt um alls kyns bóndabæji;) síðan var haldið að horfa á beverly hills og melrose place heima hjá helgu sem virtist þó ekki hafa bullandi áhuga:)

sunnudagurinn byrjaði á góðri pizzu á eldsmiðjunni og svo beint í HM hjá Guggs.....og Zidane er svooooo svalur....!!! og ekki orð um það meir...gaurinn kallaði mömmu hans hóru...(sem hún var víst á yngri árum..svona veit maður mikið;) ) eða skítugan hriðjuverkamann...zidane er kóngurinn!!!!
svo var það MONGOZ HITTINGUR...loksins...og við skelltum okkur í Háskólabíó í fötluð sæti fyrir helgu okkar;) og sáum the brake up...bara rosa fín mynd þar á ferð:)

soooo er það útilegan næstu helgi girlz...verðum eikkað að plana þetta í vikuni....pæling að reyna að finna okkur tíma til að panta pizzu á miðvikudag eða fimmtudag eða eikkað...til??

pæling allavega....en HEY....sjámst búbíííííís

Ása


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.07.2006 00:37:40 / mongoz

gleði gleði gleeeeeeeeeeeeeðiiiii =D

Eigum við aðeins að fara að grenja???

Þegar maður meiðir sig þá á maður annað hvort að þurfa að fara í aðgerð eða harka af sér!! Núna vill svona líka skemmtilega til að ég er búin að jafna mig á 3ja vikna verk í hnénu sem hindraði mjög æfingar og annað skemmtilegt:haha: en hvað gerist þá...jú við skulum kalla það ekki neitt eins og er en kannski álagsbrot eftir nokkra daga þegar læknarnir verða búnir að tjekka þetta betur...allavega þá dreif ég mig upp á slysó í dag, bara svona því ég átti nú frí í vinnunni og vissi bara ekkert hvað ég ætti að gera af mér (right!!) þessi skemmtun byrjaði kl.1 þegar ég steig inná biðstofuna, en þar eyddi ég eimmitt næstu 2 tímum... eftir það fór annar hálftími í að bíða inní einhverju herbergi og svo tók við skoðun og myndartaka og síðan ennþá lengri bið á ganginum og síðan endaði þetta allt kl.20 mín í 6 og ég í gifsi!!!! ef þið hafið einhvern tímann gert eitthvað skemmtilegra endilega deilið því með okkur;)

En þetta þýðir semsagt fyrir mig...engar æfingar...engin vinna...óhæf sem ökumaður...EKKERT LÍF8|   ...ég vona nú samt að þeim hafi eitthvað skjátlast og taki þetta af mér þegar ég kem í annað tjekk á morgun eða mánudaginn:$

En tölum aðeins um það sem gaf lífi mínu tilgang á ný:haha::haha::haha:  auðvitað fór maður á leik sem lofaði góðu og horfði á FH vinna KR og já við skulum nudda aðeins meira salti í sárin fyrir KRinga og minnast á sjálfsmarkið þeirra....svííít...og svekkjandi fyrir eina strípuna að fá rautt á hmm....93.mín:lol:

Núna legg ég samt til að allir leggist á eitt og biðji kallinn sem er að leysa Guð af í sumarfríinu að láta mig losna úr þessu gif(p)si...ég hef bara án djóks ekk tíma til að vera í þessu...:whut:

Kv. Helga

Kvennóútilega 15.-16.júlí...á að skella sér??


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.07.2006 21:21:20 / mongoz

hallóóóóó

jæja...kominn tími til:)

sumarið komið á fulla ferð...samkvæmt dagatalinu...góða veðrið hins vegar eitthvað að láta bíða eftir sér....hmmm

ætlaði að gera sona punktafærslu...en ég varð eilla aðeins of þunglynd á að gera það....frekar sona tóm í hausnum þar sem ég fékk alveg næstum því klukkutíma svefn í nótt:)

en við erum að tala um að trampolín er alvarlega inn í dag...stelpur...ef þið viljið vita hvað er í tísku þá skuluð þið vinna á leikskóla...maður þarf sko að eiga trampolín ef þú vilt eiga vini....og ef þú átt ekki sollu stirðu og/eða íþróttaálfa buff/bol/búning/bók/vatn/skó/pollagalla/stígvél/peysu o.fl...þá fittaru sko ekki inn!!

en allavega...ég afrekaði það að fara i 2 partý þessa helgi og í bæði skiptinn spilaði trampolínið stórann þátt í stemmingunni og segi ég stolt hér frá því að ég er snillingur á trampolíni...var reyndar skotið af og lenti á írisi...það var adrenalínKIKK!!!! en þetta er allavega heitt í dag;)

oooooo annað heitt....Kvennóútilegan þarnæstu helgi...stelpur við mætum þar og mössum essa útilegu...ekki satt???? Helgz aaaalveg að koma heim.....HVENAR KEMURU HEEEEIM???!!!!

mér langar líka að fara að komast í búðir8| maður er alltaf rétt kominn heim úr deginum og þá er sko ALLT lokað..ég verð að komast í búðir til að kaupa mér sollubuff og föööööt....usss

en hey...þangað til síðar....bleeess...pæling að lesa aftur þetta blogg þar sem ég man ekkert hvað ég skrifaði:$8)

SÓL SÓL SKÍN Á MIG, SKÍ SKÍ BURT MEÐ ÞIG...!!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 20:38:17 / mongoz

eitthvað til í þessu???

prufið að gera nafnið ykkar 0

A: You have trouble trusting people
B: You are always fun when it comes to meeting new people
C: youre wild and crazy
D: You are popular with all types of people
E: A Hottie
F: People totally adore you
G: You are very friendly and understanding
H: You have a very good personality and good looks
I: You Hate Liers
J: Everyone loves you
K: You like to try new things
L: You always make other people smile when you smile
M: Success comes easily to you
N: You'r great in bed
O: You love foreplay
P: You are very friendly and understanding
Q: You are a hypocrite
R: You are beautiful, and sexy
S: People think you are so sexy
T: You are one of the best in bed
U: You are really chill
V: You are not judgemental
W: You are very broad minded
X: You never let people tell you what to do
Y: you make every experience great
Z: You're Super cool
Þ: You´re fkn hot
Æ: You are outgoing person
Ö: You´re wild in bed


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 14:10:53 / mongoz

hæ hó jibbíjeij, jeij hó og hæ!

GLEÐILEGAN 17.JÚNÍ....í gær;)

Mér sýnist á öllu að hér fyrir neðan hafi verið lofað "eftir 17.júní" færslu... ég ætla að gera eina svoleiðis en hún verður kannski í styttri kanntinum þar sem mér fannst minn 17.júní svolítið stuttur....enda missti ég einhverja 5klst úr honum vegna vinnu...hver ákveður að gifta sig á 17.júní!!??!!

En já...byrjum þetta...

Dagurinn byrjaði bara hefðbundið...auðvitað kíkti maður í bæinn bara svona til að tjekka stemmninguna, telja gasblöðrur uppi í skýjunum, horfa á krakka með sleikjóa á stærð við hausinn á sjálfum og óskaði þess að maður væri sjálfur sona lítill og gæti misst sig yfir grútlélegum skemmtiatriðum og síðan djöflast í hverju leiktækinu á eftir öðru....segi svona;) En stemmningin var fín og bara slatti af fólki...eintóm gleði:D

....síðan fór ég að vinna í einhverju brúðkaupi...blablabla...það er eitthvað sem á ekki að tengjast 17.júní.. =P

Þá er það kvöldið...eftir vinnu fór maður bara heim að gera sig reddy og síðan var planið að fara í afmæli á Pravda...frítt áfengi fyrir stelpur..ekki slæmt:haha:      allavega...þangað fór ég ...með systir minni....jájá..þið sem þekkið mig og hana þá finnst ykkur þetta kannski pínu spes þar sem við erum ekki aaaaalveg á svipuðum aldri.. =P þar hittum við síðan Ingibjörgu og Innu..ég fór nú bara beint að fá mér þessa kókoshnetu sem var síðan fyllt af áfengi og já eins og ég sagði ...frítt áfengi þannig að maður fékk sér alveg nokkrar áfyllingar:haha: en þarna inni var stuðið í lágmarki þannig að ég og Eva fórum á Prikið til að hitta vinkonu hennar og okkur var sagt að þar ætti að vera hiphop DJ...ok þegar við komum var gaur uppi á sviði með lúður!!! OG ÞETTA VAR HANN!!! stemmningin þarna líka í lágmarki en hitti reyndar Eló, Heklu og Töshu + einhverja gaura...þær voru bara í gúddí edrú fíling:haha: ...Svo var það Ellefan...þar inni er jú eins og einhverjir vita hægt að finna mjög einstakt fólk...en mér hefur einmitt oft verið sagt að ég sé pínu einstök þannig að ég fittaði kannski bara fínt þarna:$ stuðið var að minnsta kosti ekki í lágmarki þarna inni, heldur í þvílíku hámarki og lögin nottla baaaaaaaaaaaaaaara hrein snilld...smá pása frá ungfrú Bíjonsí Nóls og öllum FM-lögunum..þetta var meira ekta:haha: þar var maður þangað til Ása kom..þá fórum við bara að rölta...og auðvitað nóóóg af fólki úti og eigilega aðalstemmarinn þar:haha: neðst á Laugarveginum fundum hreina snilld...2 gaurar með bongótrommur...fólk gjörsamlega missti sig í dansinum og er það ekkert nema jákvætt.

Eftir smá rölt fór þreytan að segja til sín og eftir að hafa séð þegar einhverjum gaur var fleygt í götuna og liggja þar hreyfingarlausan meðan aðrir spörkuðu í hann ákváðúm við að fara heim...;)

Held ég hafi svona nokkurn veginn sagt frá öllu og ef ekki þá er það annað hvort of merkilegt til að komast hingað eða ekki nógu merkilegt...samt pottþétt fyrri ástæðan8)

Sárast var samt að þegar ég fór inn á Hverfis þá þurfti ég að henda kókoshnetunni minni en dyraverðirnir voru svo góðir að þeir héldu smá athöfn og fengu þeir sem héldu að þeir væru VIP og þeir sem voru fyrir aftan okkur í röðinni að vera viðstaddir...takk Ása fyrir að standa við bakið á mér:(

En ég held að þetta sé bara komið...pæling að fara að koma sér í vinnuna og klára það sem klára þarf!!

Bleee...


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.06.2006 14:11:28 / mongoz

daginn..

váhh..langt síðan maður hefur látið heyra frá sér...and I wonder why? held að fólk þurfi að vera öflugara að tjá sig hér, það mundi kannski fá mann til að nenna að vinna oftar í þessu..það vill nefnilega svo skemmtilega til að ég er ekki að gera þetta fyrir sjálfa mig:P

en já 17.júní á leiðinni eins og allir vita...:haha::haha::haha::haha: eintóm gleði 8) það er bara spurning hvað fólk ætli að gera...? ég held að málið sé bara gott party með vinunum og síðan halda út á götur miðbæjarins..held að staðirnir séu ekki málið, eða jú kannski smá flakk...en frekar að vera í ruglinu með öllu hinu fólkinu úti...maður hittir flesta á götunum..ekki sveittur inni á einhverjum stað!  ...og ef þig langar að dansa þá erum ég og Elísa með góða hugmynd fyrir þig;)

og svona á meðan ég er að þessu... langar mig að skjóta inn hér smá afmælisfærslu...

ELSKU ÁSA OKKAR TIL HAMINGJU MEÐ 18 ÁRA AFMÆLIÐ ÞANN 22.APRÍL SÍÐASTLIÐINN..VONA AÐ ÞÚ HAFIR HAFT ÞAÐ SEM BEST!! WE LOVE YOU :*   það var alltaf sagt við mig þegar ég var lítil...betra er seint en aldrei:$

 mynd úr veislunni...ása sést ekki þar sem hún var frammi að taka á móti gestum..ég hins vegar rétt leit inn bara til að festa stemmarann á filmu...eða frekar minniskubb8)

en æj mér líður hálf skringilega að sitja hér og skrifa um hreinlega ekki neitt...er aðallega að þessu svo að ég sleppi við barsmíðar næst þegar ég hitti ásu...

...er farin að taka til í herberginu mínu og síðan vinna...aldrei að vita nema maður komi síðan með góða innihaldsríka færslu eftir helgi..

þangað til þá...baiju!


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.06.2006 23:35:55 / mongoz

VALUR-BREIÐABLIK

góðan daginn gott fólk...ég ætla að byrja á því að afsaka bloggleysi okkar ungu stúlkna en ég ætla að afsaka okkur með því að það er komið sumar og við eigum bara svo alltof innihaldsríkt líf núna þessa dagana að það gefst ekki tími til að setjast niður og segja frá því öllu...

en annars er allt gott að frétta af okkur...kanski smá öppdeit

  • Arndís...er að vinna við að keyra bíl...óóóóendanlega töff;) er á sona litlum...uuu sendibíl...og keyrir útum allt á morgnanna...kæróinn á sínum stað og búin að festa sig með góðum rótum í góðan jarðveg...:P (vá heimspekilegt...en samt svo heimspekilegt) svo hleypur baddnið eins og vitleysingur eins og vanalega:)
  • Ása...vinnur nú á leikskóla og fílar það í BOTN...fær mat og að sofa á daginn og síðast en ekki síst fær hún að leika sér við litlu böddnin...(eitt nýja baddnið byrjað að kalla hana mömmu:O ) sá tími sem fer ekki í vinnu fer auðvitað í fótbolta og það hefur aldrei verið skemmtilegra:D
  • Elísa...þessi unga stúlka ætlar að þrífa beð og bæji með vafasömu fólki í breiðholtinu...passaðu þig á þeim stelpa...á fullu í boltanum líka enda komin í úrvó...:P hún er laus og liðug stelpan og aldrei heitari;)
  • Helga Lísa...vinnur ennþá við að þjóna alls kyns gólfurum..já ALLS kyns....heitum, frægum, hemmum með bling, sögukennurum og miðurheitum...er laus og liðug en úr þeim hóp sem á eftir henni er, er ljóst að strákar þurfa stálhjarta til að komast að henni;) hún er á leiðinni til sverige og so að beila á þjóðhátið til að drekka í búlgaríu or some...uss

þetta er svona smá það sem er í gangi hjá okkur þessa sumardaga...

en aðalmál þessa blogs var auðvitað STÓRLEIKURINN á morgun....Valur-Breiðablik á Valbjarnavelli á morgun klukkan 4!!! þetta er með stærstu leikjum sumarsins og ef þú kannt fótbolta ertu skyldugur til að horfa...en ef þú getur ekki hlunkast á völlinn þarftu ekkert að fara yfirum...hann er sýndur beint á rúv...útsending byrjar 15:50...svo verið mætt stundvíslega í sófann...

ef þið af einhverjum ástæðum meikið hvorugt skuluð þið gjöra svo vel að láta mig vita svo ég geti sagt ykkur frá að leik loknum...!

úff...ætla halda áfram að rækta fiðrildi í maganum mínum og fá blóð á tennurnar því á morgun ætlum við að RÚSTA breiðablik og ekkert rugl!!!!!! við erum meira að segja búnar að kenna Violu að segja allskonar á íslensku..eins og tík og sona...og við hverja hún má segja það;) GOTT mál...ég sé ykkur þá í stúkuni á morgun og eru trommur VEL þegnar...

bless


» 17 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 16:44:43 / mongoz

....

VÚHÚÚÚÚÚ STELPUR...3. BEKKUR HÉR VÍ KOMM...:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.05.2006 04:20:14 / mongoz

LOKABALLIÐ

já...nú er lokaballið yfirstaðið og sumarið tekið við í öllu sínu veldi...kvennó tekur ekki á móti okkur fyrr en næsta haust so nú er bara að einbeita sér að sumrinu...

en lokaballið...það var hreint kingimagnað ball....ég byrjaði heima hjá Brynjari með nokkrum strákum úr bekknum að horfa á leikinn...sem fór 2-1 FYRIR BARCELONA:D gleði...en já..eftir leikinn lá leið okkar í fyrirpartý til röggu þar sem Elísa var dugleg á myndavélinni eins og alltaf;)

Bláman/goggi/wiber/engilbert fékk því miður ekki að vera með í þetta skiptið...enda er hann bara ungur og óreyndur....

en eftir partýið lá leið okkar á ballið...uuu versali held ég...veit ekki alveg hvennig við fórum af því að komast þangað heil á höldnu...en það tókst....þegar á ballið var komið tóku við dansspor sem sjaldan hafa sést áður með aðeins nokkrum hléum....virkilega skemmtilegt...!:)

svo eftir ballið var hugmyndin að fara í eftirpartý...og eftir góóóðan rúnt í vesturbænum lentum við alltíeinu á réttum stað...en því miður misstum við og allir af gleðinni vegna láta eikkerra vitleysinga....í staðin stóðum við í góðan tíma í gustinum í vesturbænum þangað til við fengum far...ég og helga, tilneydd;), héldum heim til mín og við tók haust kex og umbreyting helgu:P en svo bara góóóður svefn....

hér er smááá sýnishorn af fegurð kvöldsins...en restina er að finna á www.fotki.com/stroga

sjúúúúúklega svalar...

en þá segi ég þetta bara gott....eins gott að vera búin að sofa smá fyrir lætin í litlu krökkunum á morgun...úff

bleee...!


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 14:05:26 / mongoz

gleymt og grafið???

HVAÐ VARÐ UM HRÍSKRANSAKÖKU-ÞINGIÐ????


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 14:05:51 / mongoz

sól sól skín á mig...

jæja...verð bara að koma með eina smá færslu útaf því það er svo gott veður og það gengur svona upp og ofan að byrja að lesa geirafræði

við erum flestar sammála um það að efnafræðiprófið sökkaði...ekki satt?? en ég er tilbúin að tækla endurtökupróf í miltað til að komast uppí 3 bekk....en það er líka bara ef allt fer á vesta veg....

geirafræði á morgun...júhú...eða hvað....svo 3 sorapróf eftir

en nóg um það...ég vil bara benda ykkur á það göndlaapar sem hafið ekki séð út í dag....ÞAÐ ER GEÐVEIKT VEÐUR....og mér langar mest aftur útí fótbolta...get ekki beðið eftir æfingu á eftir...ég mæli eindregið með að þið farið núna í vesturbæjarísbúðina...þar sem hún opnaði klukkan 1 ...og kaupið ykkur ís....því þetta veður kallar sko á ís....sem útskýrir rúntinn á kagganum hennar guðnýjar í 2 ísbúðir og svo bara í mc flurry....en hey...hvað gerir maður ekki fyrir ís

ég hef eikkað voða lítið að segja þessa dagana enda allir í prófum og ekkert að gerast....en það eru bara 2 dagar í meistara meistarana við Breiðablik...og höfum við ætlað okkur að vinna þann leik...hvet alla til að mæta...samt ekki viss hvar hann er...en hey
svo eru aðeins fleiri dagar í Íslandsmót:D og er fyrsti leikurinn á móti bláu garðbæjingunum sem vilja kalla sig stjörnur á valbjarnavelli sem verður okkar heimavöllur í sumar....Eló keppir við keflavík í fyrsta leiknum...skoh þetta veit maður allt:D

svo bara stutt í að prófin verði búin...búist er við mikilli gleði á lokaballi:D oooog svo bara bráðum júróvísjón....einkateiti þá eða???

en núna er ég búin að tala um próf og fótbolta og þar sem það er voða lítið annað að gerast í lífi mínu núna verð ég að segja þessu lokið, taka upp bókina mína og halda útá svalir

takk fyrir snúðana og kökuna í gær Díza skvíza....og sérstaklegar þakkir fyrir að kynna mig fyrir þessum áttfættluvinum þínum...og ég vona að þú verðir ekki sár en ég ætla bara að sleppa því að kynnast þeim betur:* múzzz

bleee jú mongoz og drullisti til að læra:D


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4